SKÚBB... Eldheitar fréttir (bárust með mjólkurbílnum)

mynd_51.jpg

Nýjustu fréttir frá háskólafleyinu IS-AEY herma að snillingurinn og lífskúnsterinn Bjarni Hjarðar muni koma til með að kenna Stærfræðilíkön sem í daglegu tali eru nefnd Stærfræði II.

Þessi breyting á einungis við um þá sem eru á fjármálabraut og því þurfa frístundanemar á færibandabrautum háskólans, eins og Halli, ekki að hafa áhyggur. Þessar fréttir hafa hreyft við háskólasamfélaginu hér fyrir sunnan og heyrst hefur að Elfa ætli að kæra þessa ráðningu til Rektors og jafnvel fara með þetta til mannréttindadómstólsins í Haag ef ekki verði breyting á, í nafni háskólanema og fátæks fólks í Afríku.

Fráfarandi kennari hafði það oft á orðið að fólk yrði að-laaeera að laaeeera- en núna tyggi hann á orðunum -laeera að kjjeeeennna- og á hann þá líklega við um lífskúnsterinn BH. BH er enn að fagna gríðarlega góðri útkomu úr nemendamati skólans sem fór fram á dögunum, en úr henni kom gríðarlega mikið fall... þó hafi hann náð og gott betur (jafnvel einstaka níur!!).

Talað er um að hann hafi notað slembiútreikning Markovs til að sannfæra stjórnendur um ágæti sitt. Útkoman var í jákvæðri fylgni við áfangann HAR2103.

Myndin er tekin í kvöld í Austurstrætinu af 1. árs nemenda sem fékk fréttir um væntanlegan stærfræðikennara við H.A..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hanemar

Merkilegt nokk með hann Bjarna....
Var Gestur ekki tilnefndur í kvöld til bókmenntaverðlauna Íslands í hópi fagurbókmennta fyrir rit sitt "Skrifað til Bjarna"?

Fleiri bækur eru í burðarliðnum hjá Gesti s.s. "Diffraðu lífið með Texas" og "Örugg miðlun verkefnaupplýsinga" en áður hefur hann gefið út smáritin" Bjarnagælur" og "Excel, the redwine blues" sem Thomson learning tók upp á sína arma.

Hanemar, 7.12.2006 kl. 21:56

2 Smámynd: Hanemar

Mikið rétt! Enda tek ég fjármálabraut sem nám en stjórnum sem áhugamál. Þið gleymið alveg frumraun minni “The Texas Diaries – How Linear Regeression leads to Clinical Depression” sem ég gaf út snemma í haust. Mikið vanmetið bókmenntaverk á ferð þar. GT

Hanemar, 7.12.2006 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband